Jæja, þá er ég lent á Ítalíu... Flugið gekk vel, einungis nokkurra mínútna seinkun :)
Það hefur verið hitabylgja á Ítalíu undanfarið.. mér skilst að hún sé í rénun.. sem betur fer... það var 25 stiga hiti hérna um miðnættið þegar við lentum!! Sjitt hvað íslenskri feitabollu þykir það mikið þegar þarf að burðast með töskur og vera í mannmergð... hehe..
Núna er ég stödd á gistihúsi skammt frá aðalbrautarstöðinni í Bologna og er að eta morgunmat... svo fer ég út og tosa töskunrnar á eftir mér niður á stöð... og finn útúr því hvort ég man hvernig á að segja "einn miða til Flórens takk" á ítölsku :)
Vonandi hefur restin af ferðalaginu gengið vel
ReplyDelete